Messa kl. 11:00 sunnudaginn 20. ágúst. Fermingarbörn og foreldrar eru sérstaklega boðuð. Fjallað verður um einstaka liði messunar og þeir útskýrðir. Í framhaldi ökum við í lund Neskirkju í Heiðmörk þar sem við setjum niður birkigræðlinga, einn fyrir hvert fermingarbarn. Prestar eru sr. Helga Kolbeinsdóttir og sr. Skúli S. Ólafsson. Félagar úr Kór Neskirkju syngja undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Verið öll velkomin!