Prjónamessa í safnaðarheimili kl. 11. Messugestum velkomið að hafa með prjóna eða aðra handavinnu. Meðlimir í prjónahóp Neskirkju aðstoða við messuna. Félagar úr Kór Neskirkju leiða söng. Gunnsteinn Ólafsson annast undirleik. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir.

Messan verður með kaffihúsasniði. Setið við borð, kaffi og te í boði.