Fjölskyldumorgnar hefjast aftur á þriðjudögum þann 4. apríl. Þetta eru samverur sem henta fólki sem er heima með börn og langar að koma og hitta fleiri í sömu stöðu. Kaffi og te á boðstólnum, dýnur og leikföng fyrir börnin. Góð aðstaða til að hafa kerrur og vagna fyrir utan salinn, í garði kirkjunnar og hægt að ganga beint út þangað. Umsjón með samverum á vormisseri hefur Áslaug Haraldsdóttir.