Messa og barnastarf kl. 11.00. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju syngja og leiða safnaðarsöng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Sr. Skúli S. Ólafsson predikar og sr. Steinunn A. Björnsdóttir þjónar fyrir alltari. Söngur, sögur og gleði í sunnudagaskólanum. Umsjón Kristrún Guðmundsdóttir og Ari Agnarsson. Samfélag og hressing eftir messu og sunnudagaskóla á Torginu.