Vorhátíð barnastarfsins í Neskirkju verður 1. maí og hefst með fjölskylduguðsþjónustu kl. 11. Barnakór Neskirkju syngur undir stjórn Bryndísar Láru Eggertsdóttur. Sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir þjónar og leiðir stundina með Kristrúnu Guðmundsdóttur. Undirleikur Ari Agnarsson, sem einnig leikur á harmonikku úti eftir eftir guðsþjónustu, þar sem verður hoppkastali, andlitsmálning, og fjör. Starfsfólk Neskirkju grillar pylsur fyrir viðstadda.