Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11. Sameiginlegt upphaf í kirkjunni en svo fer sunnudagaskólinn yfir í safnaðarheimili.

Félagar úr kór Neskirkju syngja og leiða söng í guðsþjónustunni undir stjórn Láru Bryndísar Eggertsdóttur organista. Prestur er sr. Steinunn A. Björnsdóttir. Beðið verður fyrir friði í heiminum.

Í sunnudagaskólanum er söngur, gleði og söngur undir stjórn Hrafnheildar Guðmundsdóttur og Ara Agnarssonar sem leikur undir söng. Hressing og samfélag á torginu á eftir.