Fjölskylduguðsþjónusta með léttum brag kl. 11 á Æskulýðsdegi Þjóðkirkjunnar. Drengjakór Reykjavíkur syngur undir stjórn Þorsteins F. Sigurðssonar. Fermingarbörn og starfsfólk barna- og æskulýðsstarfs aðstoða í helgihaldi. Undirleikari er Ari Agnarsson og prestur sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu.