Foreldrar með börn eru boðnir velkomnir í Neskirkju alla þriðjudaga kl. 10 – 12 á Foreldramorgna. Í boði er kaffi og meðlæti, leikföng og góð aðstaða til að hitta aðra foreldra í hverfinu og spjalla saman. Engin formleg dagskrá er að jafnaði heldur er áhersla lögð á samfélagið. Gæðastund alla þriðjudagsmorgna. Umsjón hefur Nína Agnarsdóttir.