Samtal á Kirkjutorgi fimmtudaginn 3. mars kl. 17. Sigurður Ragnarsson sviðsstjóri viðskiptasviðs Háskólans á Bifröst. Fjallað verður um hvers vegna þjónandi forysta nýtur mikilla vinsælda og velt upp nokkrum þáttum sem mögulega liggja þar að baki. Í þessu samhengi verður hugleitt hvað það þýðir að þjóna og leiða og hvers vegna fyrirtæki, stofnanir og einstaklingar velja að iðka þjónandi forystu.