Í dag var haldin uppskeruhátíð sunnudagaskólans. Fjölmargir lögðu leið sína í Neskirkju og hlýddu á Barnakór og Stúlknakór Neskirkju syngja og til að gleðjast með starfsfólki sunnudagaskólans. Í garðinum voru hoppukastalar og pylsugrill fyrir alla sem vildu. Gleðilegt sumar og við hlökkum til nýs skólaárs sem hefst í byrjun september.