Dymbilvika og páskar í Neskirkju

Að vanda er fjölbreytt dagskrá í Neskirkju yfir bænadaga og hátíðarnar

Pálmasunnudagur, 29. mars

Hátíðarmessa og barnastarf kl. 11. Kirkjudagur Neskirkju. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurvin Lárus Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Skúla S. Ólafssyni. Messuþjónar taka þátt. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón hafa Katrín Ágústsdóttir og Ari Agnarsson. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.

Skírdagskvöld, 2. apríl
Messa kl. 20.00. Við lok messunnar verður altarið afskrýtt og á það lagðar 5 rósir sem tákn um sármerki Krists. Kór Neskirkju syngur. Organisti er Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurvin Lárus Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari.

Föstudagurinn langi, 3. apríl
Guðsþjónusta kl. 11.00. Sr. Skúli S. Ólafsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Neskirkju syngur. Organisti er Steingrímur Þórhallsson.

Páskadagur, 5. apríl
Hátíðarmessa kl. 8.00. Hátíðartón. Kór Neskirkju syngur. Organisti er Steingrímur Þórhallsson. Prestur er Sr. Skúli S. Ólafsson. Morgunverður og páskahlátur eftir messu.

Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.00. Steingrímur Þórhallsson er við hljóðfærið. Katrín Ágústsdóttir og sr. Skúli S. Ólafsson leiða stundina. Páskaeggjaleit í kringum kirkjuna að samveru lokinni!

Annar páskadagur, 6. apríl

Fermingarmessa kl. 11:00. Kór Neskirkju syngur. Organisti er Steingrímur Þórhallsson. Prestar eru, sr. Sigurvin Lárus Jónsson og sr. Skúli S. Ólafsson.