Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Stúlknakór Neskirkju syngur og leiðir safnaðarsöng. Stjórnandi og organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurvin Lárus Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón með sunnudagaskólanum hafa Andrea Ösp, Katrín Helga og Ari tónlistarmaður. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.