Við erum glöð og södd eftir æskulýðsdaginn í Neskirkju en þar var borin fram rúmlega 6 metra súkkulaðikaka og ljúffeng súpa elduð af unglingahópnum. Fyrir messu var frumsýnd stuttmyndin ,,Davíð var lítill drengur“ en hana má nú nálgast á myndasvæði barnastarfsins. Prédikunina, sem umsjónarmaður barna- og unglingastarfsins flutti, má lesa á annál hans. Sérstakar þakkir fær Barbara trúður sem gladdi hjörtu barna jafnt sem fullorðinna með hlýju sinni og gleði.