Unglingahópur Neskirkju vakti síðastliðna nótt og bakaði tæplega sjö metra af dýrindis skúffuköku. Hópurinn myndarlegi safnaði áheitum til styrktar utanlandsferðar í sumar og kann miklar þakkir fyrir þá sem stutt hafa framtakið. Öllum er boðið að koma og smakka á kökunni eftir messu kl. 11 á æskulýðsdaginn 02. mars.