Tilgangur skírnar og Jesúskírn eru stef sunnudagsmessunnar kl. 11. Messuhópur þjónar, félagar úr kór Neskirkju syngja, organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Haukur Ingi Jónasson, sem einnig er sálgreinir, prédikar og sr. Sigurður Árni Þórðarson þjónar fyrir altari. Barnamessan hefst líka kl. 11 í kirkjunni. Umsjón með barnastarfinu hafa Sigurvin Jónsson, Björg Jónsdóttir og Ari Agnarsson. Matarhópur reiðir fram súpu, brauð og kaffi á Torginu eftir messu. Allir velkomnir.