Flóamarkaður
Flóamarkaður Vestubæjar verður haldin í Neskirkju helgina 16.-17. apríl. Opið á laugardag frá 11-17 og sunnudag frá 12-17. Fjölbreytt úrval af allskyns varningi, nýjum og notuðum. Handverk, kökubasar og Kaffihús Neskirkju verður opið.
Samtal á Kirkjutorgi
Birna Gerður Jónsdóttir ljósmóðir og aðstoðardeildarstjóri á fæðingarvakt Landspítala. Fjallað verður um tengsl þjónandi forystu og menningarfærni þar sem sameiginlegar stoðir eru vitund, þekking, næmi, samskipti, hæfni og löngun til að byggja upp fólk og efla. Dagskráin fer fram fimmtudaginn 14. apríl kl. 17.
Heimsókn í Mosfellsdal
Krossgötur miðvikudaginn 13. apríl. Krossgötur í Neskirkju bregða undir sig betri fætinum og sækja heim Mosfellinga næstkomandi miðvikudag, 13. apríl kl. 13:30. Haldið verður í Mosfellskirkju þar sem drukkið verður kaffi og sagðar sögur úr sveitinni. Næst verður komið við í Dalsgarði þar sem hjónin Gísli og Helena rækta rósir og [...]
Messa 10. apríl
Messa og barnastarf kl. 11. Stúlknakór Neskirkju syngur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar, organista. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson og leggur hann út af textanum um góða og slæma hirða. Söngur, sögur og gleði í sunnudagaskólanum. Umsjón Andrea, Ari, Katrín, Oddur og Stefanía. Samfélag og kaffi á Torginu eftir messu.
Einstaklingur í orði. Sjálfsbókmenntir á Íslandi.
Krossgötur miðvikudaginn 6. apríl kl. 13.30. Sigurður Gylfi Magnússon, sagnfræðingur kemur í heimsókn. Frá hverju segir fólk sem skrásetur minningar sínar? Hvað segja sjálfsbókmenntir um einstakl-inga og íslenskt samfélag? Kaffiveitingar.
Messa 3. apríl
Messa og barnastarf kl. 11.00. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur Sigurvin Lárus Jónsson. Söngur, gleði og gaman í barnastarfinu. Andrea, Ari, Katrín, Oddur og Stefanía leiða starfið. Kaffisopi og samfélag á Torginu eftir messu. Á Torginu stendur yfrir sýning á verkum Hrafnkells Sigurðssonar.
Frank M. Halldórsson
Krossgötur miðvikudaginn 30. mars kl. 13.30. Öldrunarstarf í Neskirkju, litið um öxl. Frank M. Halldórsson, fyrrum sóknar-prestur í Neskirkju. Saga Neskirkju geymir margar frásagnir og fróðlegt verður að heyra af því öfluga starfi sem unnið var í þágu eldri borgara í tíð sr. Franks. Kaffiveitingar.
Páskadagur
Páskadagur, 27. mars. Hátíðarmessa kl. 8.00. Hátíðartón. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestar Skúli S. Ólafsson og Sigurvin L. Jónsson. Morgunverður og páskahlátur eftir messu. Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.00. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur Sigurvin L. Jónsson. Páskaeggjaleit að lokinni guðsþjónustu.
Föstudagurinn langi
Föstudagurinn langi, 25. mars.Guðsþjónusta kl. 11.00. Kór Neskirkju syngur. Píslarsagan hugleidd. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur Sigurvin L. Jónsson.
Skírdagskvöld
Skírdagskvöld, 24. mars. Messa kl. 20.00. Við lok messunnar verður altarið afskrýtt og á það lagðar 5 rósir sem tákn um sármerki Krists. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur Skúli S. Ólafsson.