Andi Vesturbæjarins
Hilmar Björnsson, arkitekt ræðir um hverfið okkar og umgjörð Neskirkju, sjálfan Vesturbæinn. Hverfið er með þeim fyrstu sem var skipulagt frá grunni og á síðustu áratugum hafa nýir hlutar bæst við það en Hilmar hefur sjálfur skipulagt og teiknað margar byggingar á þessu svæði. Kaffiveitingar.
Guðsþjónusta 19. febrúar
Guðsþjónusta og barnastarf á konudaginn kl. 11.00. Háskólakórinn syngur undir stjórn Gunnsteins Ólafssonar. Prestur er sr. Skúli Sigurður Ólafsson. Sunnudagaskólinn hefst inni í kirkju en fer svo í safnaðarheimilið þar sem boðið er upp á söng, sögur og leik undir stjórn Kristrúnar Guðmundsdóttur og félaga. Ari Agnarsson leikur undir. Hressing [...]
Nýja sálmabókin
Krossgötur þriðjudaginn 14. febrúar kl. 13.00. Margrét Bóasdóttir, söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar. Það voru mikil tíðindi þegar ný sálmabók kom í kirkjur landsins. Að baki henni liggur mikil vinna og afraksturinn er líka glæsilegur. Margrét segir frá helstu nýjungum í bókinni og kennir okkur nýja sálma. Kaffiveitingar.
Messa og barnastarf á Biblíudaginn 12. febrúar
Messa og barnastarf kl. 11. Félagar úr kór Neskirkju syngja og leiða söng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur er sr. Steinunn A. Björnsdóttir. Eftir sameiginlegt upphaf fer sunnudagaskólinn í safnaðarheimilið þar sem Kristrún Guðmundsdóttir leiðir leiki, sögur og söng og Ari Agnarsson leikur undir. Samfélag og hressing á torginu [...]
Slökun og íhugun
Krossgötur þriðjudaginn 7. febrúar kl. 13.00. Birgir Jóakimsson, jógakennari, stendur fyrir vikulegum samverum í Neskirkju þar sem hann leiðir strekkta samborgara í gegnum djúpslökun og núvitund. Hann ræðir þessi mál við leyfir okkur að finna á eigin skinni hversu gott það er að hvíla hugann og sálina. Samveran verður inn í [...]
Messa og listamannaspjall
Messa og barnastaf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiðir safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Söngu, sögur og gleði í barnastarfinu. Umsjón Kristrún Guðmundsdóttir og Ari Agnarsson. Að lokinni messu, verður listamannaspjall um sýninguna Skil | Skjól sem nú stendur yfir í safnaðarheimili Neskirkju. Áslaug [...]
Listamannaspjall um sýninguna Skil I Skjól
Sunnudaginn 5. febrúar kl. 12, að lokinni messu, sem hefst kl. 11.00, verður haldið listamannaspjall um sýninguna Skil | Skjól sem nú stendur yfir í safnaðarheimili Neskirkju. Þá mun Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir listamaður segja frá verkum sínum á sýningunni, vinnuferli og efnistökum sýningarinnar ásamt Völu Pálsdóttur, sýningarstjóra sýningarinnar sem leiðir [...]
Verðum við ekki kristið samfélag?
Krossgötur þriðjudaginn 31. janúar kl. 13.00. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, prestur í Neskirkju. Þjóðfélagsbreytingar á Íslandi og á Norðurlöndum, nokkrar breytur og þýðing þeirra. Steinunn Arnþrúður hefur meðal annars tekið þátt í rannsóknum um málefni norrænu þjóðkirknanna. Kaffiveitingar.
Messa 29. janúar
Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Sameiginlegt upphaf í kirkjunni. Í messunni syngja félagar úr Kór Neskirkju og leiða söng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Í sunnudagaskóla er söngur, sögur og gleði. Hann er í umsjá Kristrúnar Guðmundsdóttur, Hrafnhildar Guðmundsdóttur og Ara Agnarssonar sem leikur [...]
Hvað er hollt að borða?
Krossgötur þriðjudaginn 24. janúar kl. 13.00. Anna Sigríður Ólafsdóttir, prófessor í næringarfræði við HÍ. Ekki vantar leiðbeiningarnar og kúrana þegar kemur að mataræði fólks og venjum. Anna Sigríður er sérfróð á þessu sviði og hefur meðal annars unnið sjónvarpsþætti þar sem hún ræðir hollustu og næringu.