Opið hús
Í Opnu húsi n.k. miðvikudag, 28. nóvembar, mun Ari Trausti Guðmundsson náttúrufræðingur, ferðamaður og rithöfundur fræða um stjörnuhimininn. Kaffiveitingar á Torginu. Opið hús er alla miðvikudaga kl. 15.
Byltingin staðfest – messuhópar að störfum
Kirkja er fjölskylda og allir hafa hlutverk. Merk nýung varð í sögu Nessafnaðar í messunni 25. nóvember. Fyrsti messuhópurinn þjónaði við messuna. Byltingin í messuhaldi varð fyrir löngu í Neskirkju varðandi þátttöku leikmanna. Nú er hún staðfest með formlegum þjónustuhópum. […]
Krísa á dómsdegi
Við lifum í skurðpunkti tíma og eilífðar og dómsdagur er núna! Að vera í krísu hjá Kristi er, að mega fara yfir um - til lífsins. Prédikun sr. Sigurðar Árna á síðasta sunnudegi kirkjuársins, 25. nóvember 2007, er á bak við þessa smellu.
Dómsdagur
Á síðasta sunnudegi kirkjuársins eru nokkrir dómsdagstextar Biblíunnar til íhugunar. Litli kórinn, kór eldri borgara syngur undir stjórn Ingu J. Backman. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Toshiki Thoma. Er dómsdagsefnið skran úreltrar heimsmyndar eða efni fyrir nútíð og framtíð? Messan hefst [...]
Passionale
Sunnudaginn 25. nóvember kl. 17 mun tríó skipað Pamelu De Sensi flautuleikara, Martin Frewer fiðluleikara og Sophie Schoonjans hörpuleikara flytja ástríðufulla tónlist ættaða frá Frakklandi og Spáni undir yfirskriftinni Passionale. Þess má geta að þau koma hvert frá sínu landinu, Ítalíu, Belgíu og Englandi en eru öll búsett á Íslandi [...]
Sungið frá hjartanu
Jón Þorsteinsson tenór og Hörður Áskelsson orgelleikari kom fram á tónleikum föstudaginn 23. nóvember en þeir félagar hafa lengi starfað saman. Þeir munu flytja tíu sálma af hljómdiskinum „Ó, Jesú, að mér snú“ sem nýverið kom út og hefur hlotið mikið lof. Einnig munu þeir flytja fimm „Geistliche Lieder“ eftir [...]
Opið hús
Gestur í Opinu húsi miðvikudaginn 21. nóvember er dr. Dagný Kristjánsdóttir, prófessor, sem talar um Torfhildi Hólm og skáldskap hennar. Kaffiveitingar á Torginu í upphafi. Opið hús er alla miðvikudaga kl. 15.
Foreldramorgnar
Fimmtudaginn 22. nóvember kemur hjúkrunarfræðingur frá Heilsugæslunni á Seltjarnarnesi í heimsókn og fjallar um matarræði ungbarna. Foreldramorgnar eru alla fimmtudaga kl. 10.
Messa 18. nóvember
Messa og barnastarf kl. 11. Félagar úr Háskólakórnum leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Börnin byrja í kirkjunni en fara síðan í safnaðarheimilið. Söngur, sögur og brúður. Kaffi á Torginu eftir messu.Ræðuna sem ber yfirskriftina Endurkoma Krists og andleg olíukreppa er hægt [...]
Opið hús
Gestur í Opnu húsi í Neskirkju á miðvikudaginn kemur, 14. þ.m., verður dr. Þór Jakobsson veðurfræðingur sem segir frá föður sínum, Jakob Jónssyni dr. theol., fyrrum sóknarpresti í Hallgrímskirkju. Opið hús er alla miðvikudaga kl. 15. Kaffiveitingar á Torginu í upphafi.