Foreldrafélög Grunnskóla í Vesturbæ funda í Neskirkju
Upplýsingar á þessari slóð.
Með þögninni eyðir þú öllum misskilningi
Bæn er ekki pöntunarþjónusta. Maður tekur ekki upp tólið og pantar, svona svipað og þegar maður pantar pizzu úr Eldsmiðjunni eða spólu á amazon. Verslunarvæðum ekki bænina. Bæn er ástartengill. Prédikun Sigurðar Árna á bænadegi er á bak við smelluna.
Biðjið og…
Á bænadeginum 27. apríl verður messað kl. 11. Fjöldi fólks þjónar, messuhópur, matarhópur og félagar úr kór Neskirkju. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Börnin byrja í messunni en fara síðan til sinna starfa. Allir velkomnir. […]
Bjartsýnisbusl á sumardaginn fyrsta
Á næstkomandi fimmtudag munu Neskirkja, NeDó og skátafélagið Ægisbúar standa fyrir helgistund í Vesturbæjarlaug en ókeypis verður í sund þann dag. Um stundina sjá Sigurvin Jónsson og Aðalsteinn Þorvaldsson, auk unglingaleiðtoga en Ari Agnarsson mun spila sumarlög. Eftir stundina verða leikir og sprell fyrir krakkana. Allir velkomnir
Messa og bæn fyrir sjúkum kl. 11
Messa og barnastarf sunnudaginn 20. apríl kl. 11. Sr. Örn Bárður prédikar og þjónar fyrir altari. Prédikunina er hægt að hlusta á hér. […]
Munkur magnar kyrrð í Neskirkju
Það skal viðurkennt að fyrirsögnin sé dálítið mótsagnarkennd. Þannig er nú margt í lífinu. Kyrrð á hávaðasömum tímum er viss mótsögn en hún er samt möguleg. Laugardaginn 19. apríl kl. 10-16 verður haldinn kyrrðardagur í Neskirkju þar sem trappistamunkurinn, William Meninger, flytur hugvekjur og kynnir íhugunar- og hugleiðsluaðferðina Centering Prayer.Skráning [...]
Foreldramorgnar
Tannheilsa ungra barna verður umræðuefni á foreldramorgni fimmtudaginn 17. apríl. Foreldramorgnar eru alla fimmtudaga kl. 10 - 12.
Opið hús
Í opnu húsi miðvikudaginn 16. apríl mun Svavar Sigmundsson cand.mag., stofustjóri örnefnastofu Árnastofnunar, segir frá athugunum sínum á gömlum bænabókum og fræðir um þær. Kaffiveitingar á Torginu. Opið hús er alla miðvikudaga kl. 15.
Nói og frú
Kæra Hafdís HuldOkkur í Krakkaklúbbnum finnst lagið þitt Nói og frú af geisladisknum Englar í Ullarsokknum skemmtilegt og því ákváðum við að gera tónlistarmyndband við lagið. Njótið vel. Kv. Krakkaklúbbur Neskirkju
Sjáum og verum séð
"Ljósið að handan lýsti upp jörð, filmu og hans eigið líf. Hann var í ljósför sjálfur, en uppgötvaði svo að hann sjálfur var upplýstur og framkallaður." Hugleiðing Sigurðar Árna í messunni 12. apríl 2008 var um plúsana í trú og kirkju og er á bak við þessa smellu.