Sumarferðin okkar – gleði og gaman.
Það er tilhlökkun í barnastarfinu fyrir sumarferð barnastarfsins sem verður farin nú á sunnudaginn. Stefnan er tekin á Sandgerði þar sem skoðað verður safnasvæði, grillaðar pulsur og haldin helgistund í Hvalsneskirkju. Allir velkomnir - við byrjum í messu kl 11:00 - kostar ekki krónu.
Blátt áfram í Neskirkju
Miðvikudaginn 14. maí var haldið fræðslukvöld um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum. Foredrafélög leikskólanna Gullborg, Vesturborg, Ægisborg, Sæborg og Hagaborg stóðu fyrir kvöldinu sem var vel sótt enda mikilvægt málefni sem snertir okkur öll. […]
Skýrsla BaUN veturinn 2007-2008
Aðalsafnaðarfundur Neskirkju var haldinn 4.maí og var þar farið yfir atburði og starf síðastliðins vetrar.Barna og unglingastarf vetrarins var blómlegt og fjölbreytt og kennir þar margra grasa.Áhugasamir geta nú lesið skýrslu Barna- og Unglingastarfs Neskirkju.
Óvanur að sjá heilagan anda?
Kannski er okkar samtími hentugur fyrir vitundarvíkkun? Við þörfnumst öll strekkingar eigin anda, trúarstrekkingar. Hvítasunnuprédikun Sigurðar Árna var að vonum um Andann góða sem alls staðar kemur við sögu. Æfðu þig í að sjá Heilagan anda í viðburðum lífsins.
Annar í hvítasunnu
Hvað er Andi Guðs og hvernig verkar hann? Í messunni kl. 11. annan hvítasunnudag prédikar sr. Sigurður Árni Þórðarson um hlutverk hins andlega í lífi og veröld. Þeir sr. Toshiki Thoma þjóna fyrir altari. Organisti Steingrímur Þórhallsson og félagar úr kór Neskirkju syngja.
Hvítasunnudagur hátíðarmessa kl. 11
Gjöf Heilags anda fagnað. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuhópur þjónar. Sunnudagaskóli samhliða messu. Súpa, brauð og kaffi á Torginu eftir messu. Fyrirbæn fyrir sjúkum kl. 12.30 með handayfirlagningu og helgri olíu. Prédikunina er hægt að lesa og hlust á [...]
Sumarferð Sunnudagaskólans 18. maí
Sunnudaginn 18. maí verður farin árleg sumarferð Sunnudagaskólans. Börn og foreldrar, afar og ömmur hittast í messu safnaðarins klukkan 11 og síðan liggur leiðin með rútum til Sandgerðis, þar sem við munum skoða safnasvæði, grilla og hafa gaman. Allir eru velkomnir og þátttaka er öllum að kostnaðarlausu.
Myndarlegir fermingarhópar
Fimm sérstakar fermingarmessur voru í Neskirkju vorið 2008. Fermingarbörnin voru 101, sem gengu upp að altarinu og sögðu sín lífsjá. Áður en athafnirnar hófust voru hóparnir myndaðir. Með því að smella á orðið myndir má sjá þetta myndarlega fólk. Tvær myndir eru af pálmasunnudagshópnum.
Messa, Vestfirðingar í heimsókn og aðalfundur Nessóknar
Meðlimir í Félagi Súðvíkinga og Álftfirðinga vestra munu sækja Neskirkju heim sunnudaginn 4. maí kl. 11 og vera þar við almenna messu safnaðarins. Að henni lokinni verður boðið upp á súpu, brauð og kaffi. Aðalfundur safnaðarins verður haldinn í safnaðarheimilinu kl. 12.30. Venjuleg aðalfundarstörf. Prédikun sr. Arnar er hægt að [...]
Hjörtur Pálsson skáld og cand theol talar á uppstigningardag
Guðsþjónusta verður í Neskirkju á uppstigningardag, fimmtudaginn 1. maí, kl. 14. Dagurinn er helgaður öldruðum. Hjörtur Pálsson, skáld og cand theol prédikar. Litli-kórinn, kór eldri borgara, syngur undir stjórn Ingu J Backman sem jafnframt syngur einsöng. Organisti Reynir Jónasson. Sr. Örn Bárður Jónsson þjónar fyrir altari. Kaffiveitingar á Torginu í [...]