Messa 16. júní
Messa kl. 11:00. Félagar úr Kór Neskirkju syngja undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur er sr. Jón Ásgeir Sigurvinsson. Kaffi og kruðerí á Torginu að messu lokinni. Verið velkomin!
Messa 9. júní
Messa kl. 11:00. Félagar úr Kór Neskirkju mæta í sumarklæðunum og syngja við raust undir stjórn organistans og garðyrkjbóndans Steingríms Þórhallssonar. Í predikun verður lagt út af orðum hins nafntogaða Gídeons: ,,Æ, Drottinn, hvernig ætti ég að frelsa Ísrael? Ætt mín er aumasta ættin í Manasse og ég smæstur í [...]
Messa sunnudaginn 2. júní
Messa kl. 11:00. Sönghópur Marteins syngur undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Kaffisopi á torginu að messu lokinni. Í stólræðu verður lagt út af orðum Postulasögunnar: ,,En í þeim fjölda, sem trú hafði tekið, var eitt hjarta og ein sál og enginn þeirra taldi neitt vera sitt er hann [...]
Messa sunndudaginn 26. maí
Messa kl. 11 á þrenningarhátíð. Félagar úr Kór Neskirkju syngja og leiða safnaðarsöng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Prestur leggur út frá sögunni um Abraham í Mamre lundi þegar þrír óvæntir gestir birtust. Hressing og samfélag á Torginu að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.
Annar í hvítasunnu
Annan í hvítasunnu, 20. maí, er helgistund í garði kirkjunnar kl. 18.00, þar sem félagar úr Kór Neskirkju syngja, sr. Skúli flytur hugvekju og að vanda setjum við niður ávaxtatré í garðinum.
Hvítasunnudagur
Hátíðarmessa kl. 11:00 á hvítastunnudag 19. maí. Kór Neskirkju syngur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson og í predikun fjallar hann um sýningu Jónu Hlífar Halldórsdóttur, Orðið, sem er á Torginu. Að messu lokinni ræðir sr. Skúli við listamanninn um verkin.
Vorhátíð
Vorhátíð Neskirkju þann 12. maí kl. 11: Hoppukastalar, grill og gaman. Hin árlega vorhátíð er á sunnudag. Hátíðin hefst með fjölskylduguðsþjónustu kl. 11 þar sem stúlknakór Neskirkju og Drengjakór Reykjavíkur syngja. Að henni lokinni verður farið út í garðinn. Þar verða hoppukastalar og andlitsmálning auk þess sem pylsur verða grillaðar [...]
Neskirkjuhlaup á uppstigningardag
Við endurvekjum Neskirkjuhlaupið næstkomandi uppstigningardag 9. maí kl. 11.00. Dagskráin hefst inni í kirkjuskipinu þar sem boðið er upp á hvetjandi helgistund. Að því loknu fer hver á sínum hraða eftir sóknarmörkum Nessóknar, alls 10 km. Einnig má fara styttri leið (sjá kort). Þegar heim er komið bjóðum við upp á [...]
Aðalfundur Nessóknar
Aðalsafnaðarfundur Nessóknar verður haldinn fimmtudaginn 16. maí kl. 18.00 í safnaðarheimili kirkjunnar. Venjuleg dagskrá aðalsafnaðarfundar. Sóknarnefnd Neskirkju.
Messa sunnudaginn 5. maí
Messa og barnastarf kl. 11.00. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Líf og fjör í sunnudagaskólanum. Umsjón Kristrún og Ari. Samfélag og kaffisopi eftir messu á Torginu.