Próflokakvöld hjá Graduate NeDó
Framhaldsskólahópurinn okkar hélt próflokakvöld í kirkjunni í gærkvöld. Við snæddum saman kvöldverð og áttum góða samverustund með vinum okkar úr Digraneskirkju. Þá vék Guðrún Johnson sér af stundinni til að vígjast sem stórsveitarskáti hjá Ægisbúum og færum við henni hjartans hamingjuóskir með það. Myndir eru á myndasíðunni.
Aðventukvöld unglingastarfsins
Í gær sóttu 50 unglingar á aldrinum 14-19 ára aðventukvöld í kirkjunni. Æskulýðsfélög Neskirkju Fönix og Graduate NeDó fengu góða gesti í heimsókn frá æskulýðsfélögum Digraneskirkju, auk stúlkna úr Hjallakirkju. Saman sötruðu æskulýðsfélögin heitt súkkulaði, snæddu piparkökur, heyrðu jólasögu Tolstoy um Panov afa og áttu hátíðlega helgistund í kirkjunni. Myndavélin [...]
Skólar og leikskólar í aðventuheimsóknum
Það má með sanni segja að í Neskirkju fyllist allt af börnum á aðventunni. Undanfarna viku hafa 8 leikskólar sótt okkur heim, notið helgistundar og fengið piparkökur og kakó. Í dag sýna 4. bekkingar í Melaskóla helgileik fyrir yngri börnin og skólahópa leikskólanna, á morgun heimsækir Grandaskóli okkur og á [...]
Heimsljós
Hvað segir maður þegar maður gerir kross framan á sig með hendinni? Ég átti von á, að hið hefðbundna kæmi: Í nafni Guðs föður, sonar og heilags anda. Einn drengurinn í hópnum rétti snarlega upp hendi: Maður segir: Ég er ljós heimsins! Þetta var auðvitað óvænt en flott svar! Íhugun [...]
14. desember þriðji sunnudagur í aðventu
Ljósamessa og barnastarf kl. 11.00. Fermingarbörn aðstoða. Félagar úr kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Toshiki Toma. Börnin byrja í messunni en fara síðan í safnaðarheimilið. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði. Umsjón Sigurvin, María, Andrea, Ari og [...]
…eins er trúin dauð án verka.
Unglingastarf Neskirkju fékk tækifæri til að vera að gagni fyrir Hjálparstarf Kirkjunnar og Mæðrastyrksnefnd í gærkvöldi en þá fengu ungmennin að pakka matvælum fyrir jólaúthlutun. Eldri ungmennin munu síðan aðstoða við úthlutun daga 16.-23. desember. Það er mikið þakkarefni að fá að leggja okkar af mörkum til þeirra sem þurfa [...]
Aðventuheimsóknir leikskóla hafnar.
Fyrsti leikskólinn kom í heimsókn til okkar í gær (09.) en það voru ljúf börn frá Mánagarði. Í dag (10.) koma gestir frá Grandaborg, á morgun Vesturborg og Gullborg, á föstudag Hagaborg og í næstu viku Skerjagarði, Sæborg og Ægisborg. Neskirkju er mikill heiður að því að fá allt þetta [...]
Aðventusöngvar og aðventumál í Opnu húsi
Inga Backman, Litli kórinn syngja við undirleik Reynis Jónassonar í Opna húsinu 10. desember. Arnljótur Sigurjónsson segir frá afa sínum og dr. Haraldur Ólafsson, prófessor, ræðir um jólin. Jólasaga verður lesin og mikið sungið. Svo svíkur kaffið hennar Ólafiu engan. Samveran hefst kl. 15. Allir velkomnir.
Barnafatamarkaður í Neskirkju
Áttu barnaspariföt og skó sem passa ekki lengur á börnin? Skiptimarkaður fyrir barnaföt og skó á 0-10 ára byrjar í Neskirkju sunnudaginn 7. desember. Hægt er að koma í safnaðarheimlið með föt, skipta og gefa frá 10-14. Gefum fötum og skóm framhaldslíf!
Messa 7. desember
Messa og barnastarf kl. 11. Eevastiina Korri leikur á sekkjapípu. Litli kórinn - kór eldri borgara syngur undir stjórn Ingu J. Backman. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Toshiki Toma. Messuþjónar aðstoða. Börnin byrja í kirkjunni en [...]