Messa 24. október
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Lísbet, Andrea og Ari. Samfélag, veitingar og kaffi eftir messu á Torginu.
Heródesarkjúlli
Hvað borðaði biblíufólk? Í Neskirkju er súpa á hverjum virkum degi fyrir gesti og gangandi. En föstudaginn 22. október verður eldaður kjúklingaréttur Heródesar. Biblíumáltíðirnar eru í safnaðheimilinu í hádeginu á föstudögum. Máltíðir hefjast kl. 12. […]
Opið hús 20. október
Opið hús kl. 15. Kirkjutónlistin er fjölbreytileg. Sálmar eru sungnir í kirkjunni en sálmaforleikir eru sérstök listgrein organista. Steingrímur Þórhallsson, organisti Neskirkju, fjallar um sálmaforleiki fyrr og síðar. Veitingar á Torginu í upphafi.
Messa 17. okt. Grimmd, elska og réttu klæðin
Í messunni var fjallað um erfiðan texta úr 22. kafla Matteusarguðspjalls, dæmisögu um brúðakaup og brúðkaupsklæði. Örn Bárður prédikaði. Hægt er að hlusta á ræðuna á baki þessari smellu.
Messa 17. október
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Samfélag, veitingar og kaffi eftir messu á Torginu.
Fíkjulamb
Föstudaginn 14. október verður biblíumatur í boði á Torginu. Boðið verður upp á Fíkjulamb Jakobs og Rebekku. Máltíðin hefst kl. 12 með stuttri kynningu á réttinum.
Opið hús 13. október
Opið hús kl. 15. Funheit ástarbréf. Þorleifur Hauksson, fræðimaður, segir frá funheitum bréfum, sem Davíð Stefánsson sendi Þóru Vigfúsdóttur. Kaffiveitinar á Torginu í upphafi.
Fræðslunámskeið
Í október verður boðið upp á námskeiðið Trú og tilvist á 21. öld. Námskeiðið verður á þriðjudögum kl. 18.00 - 20.30. Byrjað er með máltíð á Torginu. Námskeiðið sjálft er ókeypis en verðið á matnum er 1000 kr. í hvert skipti. Skráning í síma 511 1560 eða hjá runar@neskirkja.is. Í námskeiðinu [...]
101010 – Hvernig menn?
Hvað verður um börn, sem læra að henda grjóti og eggjum í Dómkirkjuna og Alþingishúsið? Tjáningarfrelsið er höfuðgildi. En rök eru mikilvægari en köst, samræður skila meiru en hróp. Skírnir og mennska til íhugunar í prédikun Sigurðar Árna 101010 að baki þessari smellu.
Messa sunnudaginn 10. október
Messa og barnastarf kl. 11. Félagar úr Háskólakórnum leiða safnaðarsöng. Organisti Gunnsteinn Ólafasson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Lísbet, Andrea og Ari. Samfélag, veitingar og kaffi eftir messu á Torginu.