Messa 18. september
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Háskólakórnum leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu. Hér geturðu hlustað á prédikun [...]
Samskiptabyltingin og kirkjan
Bylting gerbreytir heiminum. Það er samskiptabyltingin og hún er löngu hafin. Netmiðlun og netsamskipti eru orðin mikilvægur hluti í lífi flestra. En hver eru áhrifin á kirkjuna og hvernig nýtir hún nýju miðlana? Hvað um guðfræði nýmiðla og snjallsamskipta? Breytist jafnvel kirkjusýn okkar? […]
Foreldramorgnar
Foreldramorgnar eru alla fimmtudag kl. 10 - 12. Umsjón með starfinu hefur Nína Agnarsdóttir. Fimmtudaginn 15. september verður kynning frá Ömmu mús. Sjá haustdagskrá!
Heilsa og líf
Opið hús kl. 15. Sigurður Guðmundsson fv. landlæknir og núverandi forseti heilbrigðisvísindasviðs HÍ starfaði um tíma við lækningastörf í Malaví. Hann mun deila með okkur hvað skiptir hann mestu máli í lífinu. Kaffiveitingar á Torginu í upphafi.
9/11 Kristnir og múslimar
Kristnin hefur lagt áherslu á manngildið, en það gera múslimar líka. Friðarsókn og virðing fyrir lífinu er í grunni allra trúarbragða heimsins. Kristnir vilja ekki hryðjuverk og ofbeldi, en það vilja múslimarnir ekki heldur. 11. september 2011 voru tíu ár liðin frá voðaverkum í Bandaríkjum Norður Ameríku og í hugvekju [...]
Messa 11. september
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. Eftir messu verður opnuð sýning á verkum Áslaugar Thorlacius og Finns Arnars Arnarsonar [...]
Framtíð kirkjunnar
Hver verða tengsl þjóðar, ríkis og kirkju í framtíðinni? Hver er framtíð kirkjunnar? Þessar og fleiri spurningar verða ræddar á sex hádegisfyrirlestrum Framtíðarhóps kirkjuþings í Neskirkju í september og október. Fyrsti lesturinn verður 9 september. Dr. Hjalti Hugason fjallar um ríki og kirkju. Dagskráin stendur frá 12:15-13:00 hvern dag. Hægt [...]
Fjallaform, kofi og kristin kirkja
Eftir messu, sunnudaginn 11. september kl. 12,15, verður opnuð sýning á verkum Áslaugar Thorlacius og Finns Arnars Arnarsonar í safnaðarheimili Neskirkju. Listamennirnir hafa unnið verk sérstaklega fyrir rými og umhverfi kirkjunnar auk þess sem þau hafa unnið með fermingarbörnum að gerð listaverks. […]
+fólk og -fólk
Marx, Nietsche og Freud kenna okkur tortryggni og Ricoeur endurheimt. Jesús kennir okkur að tortryggja vitleysur en að sjá veröldina með ástaraugum Guðs. Hvernig horfir þú á fólk – er það með mínus eða í plús? Prédikun Sigurðar Árna 4. september er að baki þessari smellu.
Messa 4. september
Messa og upphaf barnastarfsins kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu.