Þjóðgildin og hugsanleg frávik frá þeim.
Opið hús kl. 15 miðvikudaginn 28. september. Efnahagsmál ber jafnan hátt íumræðum um þjóðmál á Íslandi. Ólafur Ísleifsson, hagfræðingur og kennari við HR, ræðir um hvaða lærdóma er hægt að draga af hruni og úrvinnslu þess. Eins veltir hann fyrir sér gildum í íslensku þjóðlífi og frávik sem varða hrunið. [...]
Afdrep í amstri dagsins
Í vetur verður boðið upp á rólega stund síðasta þriðjudag hvers mánaðar kl. 18. Þar fara saman fallegir söngvar og trúarleg íhugun sem ætti að höfða til allra. Sr Sigurvin Jónsson leiðir stundirnar en Steingrímur Þórhallsson leiðir tónlistina ásamt gestum. Í fyrstu stundinni þriðjudaginn 27. september mun Stúlknakór Neskirkju syngja nokkur [...]
Trúir þú á kraftaverk?
Kraftaverkasögur eru opnunarsögur. Tilgangur þeirra er ekki þekkingarfræðilegur, heldur varðar hamingju manna og lausn fjötra. Kraftaverk varða kraft tilverunnar en ekki úrelta heimsmynd, Guðstengsl en ekki náttúrulögmál. Sagan af laugarbarminum er um nýtt upphaf og nýtt líf. Texti prédikunar 25. september 2011 er að baki þessari smellu. Þar er einnig [...]
Kraftaverkamessa 25. september
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkja leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Toshiki Thoma. Messuþjónar eru Droplaug og Sesselja. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag og veitingar á [...]
Þátttökusamfélag
Framtíðarhópur kirkjuþings efnir til hádegisfunda í safnaðarheimili Neskirkju þessar vikurnar. Viðfangsefnið er kirkjan, starf hennar og starfsmöguleikar. Í dag verður rætt um þjóðkirkjuna sem þátttökusamfélag. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir mun halda "örerindi" og síðan verða umræður. Samfélagið gott, hugmyndir greindar, engin orðafæð og örugglega góð súpa. Verið velkomin kl. 12 [...]
Ástin, tónlistin og fjölskyldan.
Opið hús miðvikudaginn 21. september. Ástin, tónlistin og fjölskyldan. Inga Rós Ingólfsdóttir er sellóleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands og fram-kvæmdastjóri Listvinafélags Hallgríms-kirkju. Hún mun segja frá hvernig tónlistin hefur fléttast inn í uppeldi og líf hennar og stórfjölskyldu. Opið hús er alla miðvikudaga kl. 15. Kaffiveitingar í upphafi. Sjá dagskrá!
Messa 18. september
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Háskólakórnum leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu. Hér geturðu hlustað á prédikun [...]
Samskiptabyltingin og kirkjan
Bylting gerbreytir heiminum. Það er samskiptabyltingin og hún er löngu hafin. Netmiðlun og netsamskipti eru orðin mikilvægur hluti í lífi flestra. En hver eru áhrifin á kirkjuna og hvernig nýtir hún nýju miðlana? Hvað um guðfræði nýmiðla og snjallsamskipta? Breytist jafnvel kirkjusýn okkar? […]
Foreldramorgnar
Foreldramorgnar eru alla fimmtudag kl. 10 - 12. Umsjón með starfinu hefur Nína Agnarsdóttir. Fimmtudaginn 15. september verður kynning frá Ömmu mús. Sjá haustdagskrá!
Heilsa og líf
Opið hús kl. 15. Sigurður Guðmundsson fv. landlæknir og núverandi forseti heilbrigðisvísindasviðs HÍ starfaði um tíma við lækningastörf í Malaví. Hann mun deila með okkur hvað skiptir hann mestu máli í lífinu. Kaffiveitingar á Torginu í upphafi.