Hvítasunnudagur
Hátíðarmessa kl. 11. Kirkjukór frá Sandnesi í Noregi syngur ásamt Kór Neskirkju. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Í messunni verður fermdur Páll Stefán Magnússon, Stýrimannastíg 14. Samfélag og kaffi á Torginu eftir messu.
Annar í hvítasunnu
Messa kl. 20. Tónlist í höndum Steigríms Þórhallssonar organista. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Sigurvini Jónssyni.
Afi Jesú
Vegna samfélagsáfalla, vegna náttúrumengunar og sára á líkama Krists er upp runnið nýtt skeið í veraldarsögunni, skeið Heilags Anda. Nú er þörf guðfræði og lækninga, sem tekur sárin alvarlega. Adrian Hafsteinn var skírður í messu 20. maí og skírn hans var í prédikuninni tengd guðspjalli og, þrenningarkenningunni og breytingum á [...]
Fermingar 2013
Mánudaginn 21. maí kl. 10 hefst skráning fermingarbarna í Neskirkju og verður fram haldið kl. 10-16 alla virka daga. Skrá þarf samtímis námskeið og fermingardag. Sjá nánar hér!
Messa sunnudaginn 20. maí
Messa og barnastarf kl. 11. Börnin byrja í messunni en fara síðan í sína árlegu vorferð (sjá hér). Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Samfélag og kaffi eftir messu á Torginu.
Vorferð barnastarfsins
Vorferð sunnudagaskólans verður farin sunnudaginn 20. maí. Ferðin hefst í messu kl. 11 og síðan verður farið með rútu í Kaldársel þar sem verða grillaðar pylsur og farið í fjölbreytta leiki. Allir eru velkomnir í ferðina og þátttökugjöld eru engin.
Guðsþjónusta Ísfirðinga
Hin árlega guðsþjónusta Ísfirðingafélagsins í Reykjavík verður haldin sunnudaginn 20. maí kl. 14.00. Guðsþjónusta félagsins hefur undanfarin ár verið sungin í Neskirkju, í góðu samstarfi við sóknarprestinn ísfirska, sr. Örn Bárð Jónsson og verður engin breyting á í ár. Þá er Ísfirðingafélaginu í Reykjavík mikill heiður að því að Ísfirðingurinn [...]
Uppstigningardagur 17. maí
Guðsþjónusta kl. 11. Hljómur - kór eldri borgara í Neskirkju syngur. Stjórnandi og organisti Magnús Ragnarsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Kaffiveitingar á Torginu að lokinni guðsþjónustu.
Messa 13. maí
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu. Samfélag og veitingar á [...]
Vorferð
Opið hús miðvikudaginn 9. maí. Vorferð starfsins í Hellisheiðarvikjun. Virkjunini er sýningargluggi fyrir sjálfbæra jarðhitanýtingu Íslendinga. Margmiðlunarsýningu og leiðsögn um virkjun jarðhitans á Hengilsvæðinu, jarðfræði og sérþekkingu Íslendinga á sviði jarðvarma. Kaffiveitngar á staðnum. Hljómur kór eldriborgara í Neskirkju slæst með í ferðina og tekur lagið. Lagt af stað frá [...]