Fréttir

Fréttir2017-04-26T12:23:05+00:00

Svipmyndir af árshátíð NeDó.

Unglingastarf Neskirkju NeDó hélt veglega árshátíð á dögunum og voru um 40 krakkar sem mættu í sínu fínasta pússi. Stemningin var ógleymanleg eins og sjá má í þessu myndbandi með helstu viðburðum árshátíðar. NeDó, NeDó, NeDó ...!!!

By |3. maí 2013 13:08|

Skot í mark

Í lífi og samfélagi gerum við stundum mistök. Við gerum tilraunir sem óheppnast og skjótum jafnvel langt frá markinu. Hvað er til ráða? Elskið, elskið, elskið. Það er erindi kirkjunnar á degi eftir kosningar og reyndar boðskapur Jesú fyrir alla daga. Prédikun Sigurðar Árna 28. apríl, 2013 er að baki [...]

By |28. apríl 2013 16:19|

Messa sunnudaginn 28. apríl

Messa og barnastarf kl. 11. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. Kaffiveitingar á Torginu eftir messu.

By |24. apríl 2013 10:47|

Vorferð í Hafnarfjörð

Opið hús miðvikudaginn 24. apríl. Vorferð í Hafnarfjörð. Hafnarborg, Hafnarfjarðarkirkja og fleira. Lagt af stað frá Neskirkju kl. 13.

By |24. apríl 2013 10:47|

Paradís

Vissir þú - bumbubúinn - nokkuð um bíla, neyslu eða þingkosningar? Þú varst sprellifandi og smátilveran var þér nægileg. Tilveran var stærri en móðurlegið en þú skildir hana ekki. Hvernig og hvað er eilífð? Texti þriðja sunnudags eftir páska er úr fjórtánda kafla Jóhannesarguðspjalls og þar talar Jesús um veginn, [...]

By |21. apríl 2013 15:10|

Messa 21. apríl

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Háskólakórnum leiða safnaðarsöng. Organisti Gunnsteinn Ólafsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. Kaffiveitingar á Torginu eftir messu.

By |19. apríl 2013 09:28|

Opið hús

Opið hús miðvikudaginn 18. apríl. Gæði á hjúkrunarheimilum. Hvað skiptir mestu máli þegar hjúkrunarheimili er valið, er það umhverfið, umönnunin, samskiptin eða umhyggjan? Dr. Ingibjörg Hjaltadóttir hjúkrunarfræðingur fékk 2012 viðurkenningu fyrir einstakt framlag í þágu aldraðra. Hún kemur og segir frá fræðum sínum og lífsgæðum fólks. Kaffiveitingar í upphafi.

By |17. apríl 2013 10:57|

Kirkjugestir eða prestastefna?

,,Ég hóf þessa messu á orðunum ,,Kæru kirkjugestir, verið hjartanlega velkomin í kirkju á þessum fallega degi." Þessi algenga heilsa, sem virðist í senn vinaleg og eðlileg vekur samt upp spurningar um eðli kirkjunnar og starf prestsins. Er presturinn húsráðandi í kirkjunni og kirkjan menningarstofnun sem maður heimsækir?" Prédikun sr. [...]

By |14. apríl 2013 13:28|

Messa sunnudaginn 7. apríl

Messa og barnastarf kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurvin Lárus Jónsson prédikar og þjónar fyirr altari. Söngur, sögur og gleði í barnastarfinu. Umsjón Andrea, Katrín og Ari. Samfélag og kaffi á Torginu eftir messu.

By |12. apríl 2013 19:55|

„Hreint út sagt“

Opið hús miðvikudaginn 10. apríl kl. 15. Svavar Gestsson fv. ráðherra og sendiherra segir frá lífshlaupi sínu og les úr nýútkominni bók sinni. Kaffiveitingar í upphafi.

By |8. apríl 2013 20:40|