Foreldramorgnar
Foreldramorgnar eru byrjaðir aftur eftir jólafrí. Foreldramorgnar eru í umsjón Nínu Agnarsdóttur og eru alla fimmtudaga frá kl. 10-12. Næsta fimmtudag er á dagskrá kaffi og spjall. Allir foreldrar hjartanlega velkomnir !
Hver er fatlaður og hver ekki?
Miðvikudaginn 15. janúar kl. 13.30 koma góðir gestir á Krossgötur - opið hús til að fræða og svara spurningum. Fötlunarfræði. Snæfríður Þórdís Egilson, prófessor í fötlunarfræðum og Hanna Björg Sigurjónsdóttir, dósent í sömu grein, koma og ræða um sitt fag. Hvað er fötlun? Hverjir eru fatlaðir? Hverjir eru ekki fatlaðir? [...]
Lækað á lækinn – prédikun Arnar Bárðar sd. 12. janúar
Smelltu hér til að hlusta á ræðuna og lesa punktana. Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Örnólfur Kristjánsson, sellóleikari flytur tónlist. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Messuþjónar aðstoða. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. [...]
Lygi eða sannleikur?
Sagan um vitringana er ekki goðsaga heldur helgisaga. En er helgisagan lygi eða sannleikur? Sigurður Árni skoðaði ýmsar hliðar á helgisögunni um komumennina sem færðu Jesú gjafir, merkingu sögunnar, hvort hún væri bull eða þjónaði einhverjum sannleika. Hugleiðing 5. janúar 2014 er að baki tveimur smellum, annars vegar á tru.is [...]
Hallgrímur 400 og krossgöturnar í Neskirkju
Miðvikudaginn 8. janúar hefjast Krossgötur í Neskju að nýju. Allir eru velkomnir til þessara samtals- og umræðufunda í safnaðarheimili kirkjunnar. Krossgötur eru á dagskrá alla miðvikudaga kl. 13,30-15. Kaffi og veitingar. Í ár eru fjögur hundruð ár frá fæðingu prestsins og skáldsins Hallgríms Péturssonar. 8. janúar kemur dr. Margrét Eggertsdóttir [...]
Janúarfasta í Neskirkju 9. – 26. janúar 2014
Nýr lífsstíl á nýju ári? Vilt þú léttast og lifa orkumeira lífi? Hjónin, Elín Sigrún Jónsdóttir og Sigurður Árni Þórðarson, bjóða til janúarföstu í samvinnu við Jóhönnu Vilhjálmsdóttur og Neskirkju. Jóhanna hefur um árabil sökkt sér í rannsóknir á heilsu og forvörnum gegn sjúkdómum og gaf nýlega út metsölubókina Heilsubók [...]
Hamingjan er heimilisiðnaður
Hamingja er ekki slys eða tilviljun heldur afrakstur ákvörðunar og stefnu. Hamingjan er ákveðin og raunar ávöxtur ákvörðunar. Hamingjan er meðvitaður heimilisiðnaður. Hugleiðing Sigurðar Árna á nýársdag er að baki báðum þessum smellum tru.is og sigurdurarni.is
Helgihald um áramót
Gamlársdagur 31. desember Aftansöngur kl. 18. Trompet Baldvin Oddsson. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Nýársdagur 1. janúar Hátíðarmessa kl. 14. Einsöngur Gissur Páll Gissurason. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari.
Altari himinsins
Öll máttarvöld vilja umvefja okkur, njóta fjármuna okkar og tilbeiðslu. Hverju þeirra lýtur þú? Hver er dýpsta von þín? Hvert er altari þitt og hvaða valdi lýtur þú? Prédikun Sigurðar Árna á degi jóla var um vald og eðli valds, Tiburvölvu, Ágústínus keisara og Guð. Ræðan er að baki báðum [...]
Sunnudagurinn 29. desember
Messa og barnastarf kl. 11.00 Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Hilmar Örn Agnarsson. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón Ása Laufey, Katrín og Ari. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu.