Fréttir

Fréttir2017-04-26T12:23:05+00:00

Má bjóða þér kyrrð?

Í janúar var kyrrðardagur í Neskirkju og þátttakendur hvöttu til að annar kyrrðardagur yrði haldinn. Og næsti kyrrðardagur verður haldinn 29. mars. Kyrrðardagur er dekurdagur fyrir sálina og öllum opinn. Dagskrá hefst kl. 10 árdegis og lýkur um kl. 15,30. Sigurður Árni Þórðarson stýrir þessum kyrrðardegi. […]

By |18. mars 2014 11:55|

Pyotr Ilyich Tchaikovsky

Pyotr Ilyich Tchaikovsky var tónsnillingur og samdi margbreytileg verk. Áslaug Gunnarsdóttir, píanóleikari, skýrir og spilar hluta úr Árstíðum Tchaikovskys. Fyrri hlutann flutti hún í nóvember og leikur seinni hlutann í þetta sinn. Kaffiveitingar.

By |18. mars 2014 09:28|

Bach og Steingrímur

Tónleikar Steingríms Þórhallssonar organista  í hádeginu á miðvikudögum halda áfram. Tónleikarnir eru tileinkaðir Bach og í vor munu Steingrímur spila kóraforspil hans, Orgelbuchlein og Leipzig kóralforspilin eða sálmaforleikir, sem að flestra mati eru tónsmíðaleg undur. N.k. miðvikudag, 19. mars, er komið að föstuforleikjum, en þar eru margir gullmolar í orgelbuchlein. Einnig verður Leipzig [...]

By |18. mars 2014 09:24|

Norðurljós

Söngsveitin Fílharmónía og Kór Neskirkju halda sameiginlega tónleika í Neskirkju laugardaginn 15. mars kl. 17. Efnisskráin er fjölbreytt og inniheldur verk eftir bæði íslenska og erlenda höfunda frá ýmsum tímabilum tónlistarsögunnar. Kórarnir syngja ýmist í sitthvoru lagi eða saman. Saman flytja kórarnir m.a. „Northern lights“ eftir norska tónskáldið Ola Gjeilo [...]

By |15. mars 2014 10:00|

Messa sunnudaginn 16. mars

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Háskólakórnum leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Ása Laufey, Katrín og Ari. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.

By |14. mars 2014 13:11|

Krossgötur 12. mars

Krossgötur miðvikudaginn 12. mars kl. 13.30. Sigríður Ólafsdóttir, lífefnafræðingur. Hvað er lífefnafræði? Frumkvöðlastarf, fyrirtækjarekstur, nýsköpun. Þjóðfélagsmál, strjónmál. Kaffiveitingar.

By |10. mars 2014 11:23|

Messa sunnudaginn 9. mars

Messa og barnastarf kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Messuþjónar aðstoða. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón Ása Laufey, Katrín og Ari. Samfélag og léttar veitingar á Torginu eftir messu.

By |6. mars 2014 09:40|

Súpa dagsins

Miðvikudaginn 5. mars verður boðið upp á grænmetissúpu (kókosmjólk, paprika, brokkolí, hvítkál, gulrætur, sætarkartöflur, laukur og hvítlaukur) í hádeginu á Kaffitorginu. Verð fyrir súpu og brauð er 900 kr. Kaffitorg Neskirkju býður upp á gæða súpur í hádeginu alla virka daga.

By |5. mars 2014 10:25|