Myndir frá barnamessunni 7. september
Hér eru nokkrar myndir frá barnamessunni.
Fjölskylduguðsþjónusta á Sunnudag
Næsta sunnudag hefst barnastarf Neskirkju með fjölskylduguðsþjónustu kl. 11.00. Æskulýðsprestur Neskirkju Sigurvin Lárus Jónsson leiðir stundina ásamt Steingrími Þórhallssyni organista, sunnudagaskólastarfsfólki og NeDó-leiðtogum. Skráning í barnastarf Neskirkju á mánudögum og þriðjudögum er hafin.
Messa 31. ágúst
Messa kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Judith Thorbergsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Sýning á verkum listakonunnar Ragnhildar Stefánsdóttur verður opnuð á Torginu eftir messu. Kaffiveitingar. Ræðuna er hægt að nálgast hér.
Sýning Ragnhildar Stefánsdóttur
Sunnudaginn 31. ágúst verður opnuð í safnaðarheimili Neskirkju sýning á verkum listakonunnar Ragnhildar Stefánsdóttur. Á sýningunni, sem ber yfirskriftina Skynjun, eru þrjú verk: Vox populi sem er hugleiðing um tunguna, Svo á himni sem á jörðu, um augað og Innút, um þefskynið. […]
Stórfyrirtæki í Evrópu, Ameríku og víðar setja sér siðareglur vegna þess að siðsemi í viðskiptum borgar sig þegar til lengri tíma er litið. Siðlaus fyrirtæki tapa alltaf á viðskipum. Stjórnvöld, hreyfingar og fyrirtæki ættu skilgreina gildi sín og setja skýrar reglur um viðmið, ferla og mörk. Úr prédikun Sigurðar Árna [...]
Messa 17. ágúst
Messa kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.
Menn lyginnar
Menn lyginnar eru falsspámenn. Þeir eru Gosar í lífinu. Prédikun Sigurðar Árna sunnudaginn 10. fjallar um óheilindin og hinar víðtæku og herfilegu afleiðingar lyginnar. Jesús fer leið sannleikans. Hvaða leið viljum við fara? Prédikunin er á tveimur vefslóðum, á trú.is og sigurdurarni.is
Fermingar 2015
Skráning og val á fermingardögum fyrir 2015 er hafið og fer skránig fram í síma 511 1560 milli kl. 10 og 16. Sumarnámskeiðið hefst sunnudagskvöldið 17. ágúst. Sjá nánari upplýsingar hér.
Messa 10. ágúst
Messa kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Kaffisopi á Torginu eftir messu.
Tekex og ansjósur
Hvað gerir þér gott? Fjölbreytilegt fæði og í hæfilegum skömmtum - jafnvel líka tekex og ansjósa úr dós. Líka tengsl við fólk, tilfinninganæring, líkamleg hreyfing - að einhver sjái þig, brosi við þér og tjái þér að þú sért mikils virði. Prédikun Sigurðar Árni í messunni 3. ágúst 2014 er [...]