Krossgötur mánudaginn 16. nóvember kl. 13.00. Margrét Eggertsdóttir og Katelin Marit Parsons: Hið heilaga og hið vanheilaga. Viðtökur og dreifing trúarlegra og veraldlegra bókmennta eftir siðaskipti á Íslandi. Þær Margrét og Katelin eru meðal ritstjóra nýútkominnar bókar: The Sacred and the Profane in premodern Icelandic literature, ca. 1500–1800. Þar eru tekin fyrir bókmenntaverk og fjallað um viðtökur þeirra á tímabili í sögu Íslands sem lítið hefur verið rannsakað. Hin hefðbundna tvískipting texta í trúarlega og veraldlega er tekin til endurskoðunar í þeim tilgangi að nálgast verkin á heildstæðari hátt þannig að hægt sé að greina hið heilaga í hinu vanheilaga og öfugt. Í fyrirlestri sínum kynna þær þetta metnaðarfulla verk.