Upphaf sunnudagaskólans

Sunnudaginn 6. september verður messa og upphaf sunnudagaskólans í vetur. Eftir sameiginlegt upphaf færir sunnudagaskólinn sig yfir í safnaðarheimilið þar sem við tekur söngur, leikur og sögur. Umsjón með sunnudagaskólanum hafa Karólína Björg, Kristrún Lilja, Karen Ósk og Nanna auk Ara Agnarssonar sem leikur undir.

Í messunni syngja félagar úr kór Neskirkju og leiða söng undir stjórn Sørens Gaardsted Frandsen, organista. Prestur er sr. Skúli Sigurður Ólafsson.

Hressing og samfélag á torginu að loknu helgihaldi.

By |2026-09-01T15:10:42+00:001. september 2026 15:10|

Share This Story, Choose Your Platform!