Krossgötur 12. október kl. 13. Ársæll Arnarson, sálfræðingur, flytur erindi sem hann kallar „Listin að vera leiðinlegt foreldri“. Flestir foreldrar kannast við þá klemmu að þurfa að vera „leiðinlega foreldrið“, sem bannar það sem „allir“ aðrir leyfa, sem setur mörk og gerir kröfur. Þetta er líklega ekki það hlutverk sem flest okkar sáu sig í þegar við ákváðum að eignast börn.
Um leið og börn hafa öðlast frumskilning á tungumálinu, virðast óþægilega margar setningar foreldranna byrji á „Nei“ eða „Ekki“. En þessi orð kunna kannski að vera þau mikilvægustu sem foreldrar segja við börn sín. Í fjörlegum fyrirlestri verður farið yfir það hvernig maður setur mörk og hvers vegna.