Krossgötur mánudaginn 5. október kl. 13.00. Guðrún er yngsta barnabarn þessa litríka og umdeilda stjórnmálamanns. Hún fjallar um stormasamt lífshlaup afa síns, hugsjónirnar og ríkulegan afrakstur. Sjónarhorn hennar er annað en við höfum aðgengi að í ritum og umfjöllun fræðimanna sem hafa fjallað um Hriflu-Jónas. Jónas tengist sögu Neskirkju. Þegar teikningar að kirkjunni voru birtar í byrjun 5. áratugarins, þá beitti Jónas sér af hörku gegn því að byggingin yrði reist. Hann líkti útlitinu við samansafn af skúrum sem hrúgað væri hver upp á annan! Alexander Jóhannesson háskólarektor og formaður byggingarnefndar sendi loks teikningarnar til Eero Saarinen arkitekts við Columbia háskólann í Bandaríkjunum sem gaf útliti kirkjunnar sín bestu meðmæli. Við það lægði öldurnar.