Sunnudaginn 4. október kl. 11:00 opnar sýning Leifs Ýmis Eyjólfssonar: Bílar. Í sýningarskrá ræðir höfundur hugmyndina að baki verkunum: ,,Hvernig ætti maður að líta á þetta? Er þetta að segja eitthvað um mig?Eða er þetta ekki bara hryllingur, allir þessir bílar? Eða er ég að reyna vera eitthvað annað en praktískur? Eða bara töff? Eða betra að labba bara? Eða eru þetta bara allt ljótir bílar? Allir eins. Það er þó ekki sanngjarnt. Þeir eru fallegir þegar það kemur vont veður. Og þegar ég þarf að gera stórinnkaup. Eða er þetta allt svona illa skipulagt að ég get ekki labbað? Eða er bara ekki gert ráð fyrir því að ég labbi? Ætti ég að flytja mig nær verslunarkjarna? Eða á ég að fá mjólkina senda heim? Eða eru hjólin frjálsari en fæturnir? Eða ætti ég að hætta að flýta mér svona?“ Sr. Jón Ómar Gunnarsson fjallar um verkin í predikun og opnar sýninguna. Svo að messu lokinni ganga gestir á Torgið, virða listina fyrir sér og leiða hugann að því sem hún tjáir og endurspeglar.