Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Sameiginlegt upphaf í kirkjunni. Í messunni syngja félagar úr Kór Neskirkju og leiða söng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Í sunnudagaskóla er söngur, sögur og gleði. Hann er í umsjá Kristrúnar Guðmundsdóttur, Hrafnhildar Guðmundsdóttur og Ara Agnarssonar sem leikur undir. Samfélag og hressing á torginu eftir messu.