Jól og áramót

Aðfangadagur, 24. desember
Jólastund barnanna kl. 16
Helgistund fyrir börn og fjölskyldur þeirra meðan beðið er eftir jólunum. Barnakór kirkjunnar syngur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista sem leikur einnig undir söng. Viðstöddum býðst að taka þátt í að leika jólasöguna og við lifum okkur inn í gleði og hátíð jólanna. Sr. Helga Kolbeinsdóttir leiðir stundina ásamt Rúnar Reynissyni og starfsfólki barnastarfsins.

Aftansöngur kl. 18
Kór Neskirkju syngur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar verður flutt.  Margrét Hrafnsdóttir sópran syngur einsöng. Prestar eru sr. Skúli S. Ólafsson og sr. Helga Kolbeinsdóttir sem predikar.

Söngvar á jólanótt kl. 23.30
Sungnir verða jólasálmar og vonartextar Biblíunar lesnir. Háskólakórinn syngur og leiðir söng undir stjórn Gunnsteins Ólafssonar.  Sr. Skúli S. Ólafsson leiðir stundina. Þessi samvera færir okkur kyrrð og helgi eftir gleði og glaum kvöldsins.

Jóladagur, 25. desember
Hátíðarmessa kl. 14
Kór Neskirkju og Drengjakór Reykjavíkur syngja undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista og Þorsteins Sigurðssonar. Hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar flutt. Prestar eru sr. Helga Kolbeinsdóttir og sr. Skúli S. Ólafsson sem predikar.

Annar í jólum, 26. desember
Fjölskyldustund og jólaball sunnudagaskólans kl. 11
Helgistund í kirkjunni fyrir alla fjölskylduna. Að henni lokinni hefst jólaball sunnudagaskólans þar sem gengið verður kringum jólatréð og sungið dátt. Góðir gestir kíkja við, gefa börnum jólaglaðning og skemmta ungum sem öldnum. Umsjón hafa prestar og starfsfólk barnastarfsins.

Gamlárskvöld, 31. desember
Aftansöngur kl. 18.
Félagar úr kór Neskirkju syngja undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar flutt. Prestur er sr. Helga Kolbeinsdóttir.

Nýársdagur, 1. janúar
Hátíðarguðsþjónusta kl. 14
Kór Neskirkju syngur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar flutt. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson.