Pálmasunnudagur, 29. mars
Hátíðarmessa kl. 11.00 á vígsludegi kirkjunnar. Kór Neskirkju syngur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson. Sunnudagskólinn er á sínum stað með söng, sögum og gleði. Kaffiveitingar og samfélag á Torginu eftir messu.

Mánudagurinn 30. mars
Krossgötur kl. 13.00. Svanhildur Óskarsdóttir, rannsóknarprófessor hjá Árnastofnun: Passíusálmar Hallgríms – list og túlkun. Kaffiveitingar.

Skírdagur 2. apríl
Messa og máltíð, kl. 18.00,  í kirkjunni með dúkuðu borði. Þau sem geta eru hvött til að leggja eitthvað til máltíðarinnar. Kór Neskirkju syngur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Prestur er sr. Jón Ómar Gunnarsson.

Föstudagurinn langi, 3. apríl
Hegistund kl. 11.00. Píslarsagan lesin og hugleidd. Einsöngur Tinna Sigurðardóttir og Silja Björk Huldudóttir. Steingrímur Þórhallsson er við hljóðfærið. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson.

Páskadagur, 5. apríl
Hátíðarmessa kl. 8.00. Kór Neskirkju syngur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar sungið. Prestar kirkjunnar þjóna. Morgunkaffi og páskahlátur að messu lokinni. Sr Jón Ómar Gunnarsson þjónar fyrir altari, sr. Skúli S. Ólafsson predikar.

Fjölskylduguðsþjónusta og páskaeggjaleit kl. 11:00 í umsjón sr. Jóns Ómars Gunnarssonar og leiðtoga í barnastarfinu.11:00,

Annar í páskum 1. apríl
Fermingarmessa kl. 11.00. Kór Neskirkju syngur. Organisti er Steingrímur Þórhallsson. Báðir prestar kirkjunnar þjóna.

Sunnudagurinn 12. apríl
Messa og barnastarf kl. 11.00. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Félagar úr Kór Neskirkju syngja. Félagar úr Kór Neskirkju syngja undir stjórn Steingríms Þórhallsonar organista. Sunnudagskólinn er á sínum stað með söng, sögum og gleði. Kaffiveitingar og samfélag á Torginu eftir messu.

Fermingarmessa kl. 13.30. Kór Neskirkju syngur. Organisti er Steingrímur Þórhallsson. Báðir prestar kirkjunnar þjóna.