Messa og barnastarf kl. 11:00. Fjallað verður um þá kunnu féndur, Davíð og Golíat, en sagan sú geymir marga þræði sem freistandi er að leggja út af. Félagar úr Kór Neskirkju syngja undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Barnastarfið er á sínum stað með söng og gleði. Kaffiveitingar á Torginu. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson. Kl 20:00 er dagskrá á Torginu um abstraktlist þar sem Sigurjón Árni Eyjólfsson, guðfræðingur og Styrmir Örn Guðmundsson, myndlistarmaður halda erindi.