Aðventuhátíð barnanna – stund fyrir börn og foreldra
Neskirkja býður börnum í leikskóla og yngri bekkjum grunnskóla á aðventuhatíð fimmtudaginn 8. desember kl. 17.30. Barnakór syngur, Snuðra og Tuðra bregða á leik og Afi (Örn Árnason) segir sögur. Jólasöngvar og jólasálmar. Góð og gefandi stund fyrir börn og foreldra.
Fjölskylduguðsþjónusta 4. desember
Fjölskylduguðsþjónusta í umsjá prests og starfsfólks barnastarfs. Sögur og söngur. Barnakórar Neskirkju koma fram. Stjórnandi Jóhanna Halldórsdóttir. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir.
O Magnum Mysterium – Jólatónleikar í Neskirkju
Jólatónleikar Kórs Neskirkju verða sunnudaginn 4. desember kl. 17.00.Drengjakór Reykjavíkur verður sérstakur gestur á tónleikunum. Einsöngur er í höndum Hallveigar Rúnarsdóttur og orgelleikari er Björn Steinar Sólbergsson. Stjórnandi tónleikanna er Steingrímur Þórhallsson organisti og stjórnandi Kórs Neskirkju og Drengjakórs Reykjavíkur. Á tónleikunum flytur Kór Neskirkju tónlist tengda jólum, úr ýmsum áttum, allt frá [...]
Fimm sjónarmið
Fimm sjónarmið Í ljósi þess að breytingar á trúfélagsskráningu hafa áhrif fyrsta desember á ári hverju er rétt að vekja athygli á því hvað þjóðkirkjufólk í Nessókn fær fyrir aurana sína: Byrjum á því augljósasta, húsnæðinu. Nessókn stendur straum af öllu viðhaldi og rekstri á Neskirkju. Byggingin markar tímamót í [...]
Kristín Gunnlaugsdóttir
Krossgötur miðvikudaginn 30. nóvember kl. 13.30. Kristín Gunnlaugsdóttir, myndlistakona kynnir sýningu sína, Siðbót, sem opnuð var á Kirkjutorginu í byrjun aðventu. Hún hefur sérstaklega unnið verk fyrir sýninguna sem kallast á við 500 ára afmæli siðbótarinnar sem við fögnum á næsta ári. Heitt súkkulaði og sætindi.
Kristnir og múslimar fagna saman Ashura
Ashura hátíð verður haldin í Neskirkju laugardaginn 26. nóvember 2016 kl. 14 – 16. Hátíðin er haldin í samstarfi við félagið Horizon, sem var stofnað af ungum muslimum sem vilja vera virkir í samtali við aðra hópa samfélagsins í að brjóta niður múra og byggja traust. Hátíðin er öllum opin [...]
Hátíðarmessa, barnastarf og opnun sýningar
Kristín Gunnlaugsdóttir listakona Fyrsti sunnudagur í aðventu. Hátíðarmessa og barnastarf kl. 11. Kór Neskirkju syngur í messunni undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestar Neskirkju þjóna. Fjallað verður um um myndlistarsýningu Kristínar Gunnlaugsdóttur, Siðbót, sem opnuð verður í lok messunnar. Þar segir listamaðurinn frá verkum sínum. Sýningin markar [...]
Aðventan
Krossgötur miðvikudaginn 23. nóvembar kl. 13.30. Steingrímur Þórhallsson, organisti í Neskirkju, sest við orgelið og flytur tónlist sem tengist aðventunni. Mögulega verður boðið upp á tónlistargetraun í anda Kontrapunkts! Kaffiveitingar á Torginu.
Messa 20. nóvember
Messa og barnastarf kl. 11. Síðasti dagur kirkjuársins. Sameiginlegt upphaf. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur Skúli S. Ólafsson. Söngur, sögur og gleði í barnastarfinu. Umsjón Stefanía, Guðrún, Katrín og Ari. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.
Tónar og tal
Krossgötur miðvikudaginn 15. nóvember kl. 13.30. Áslaug Gunnarsdóttir, píanóleikar býður okkur að njóta tónlistar og fróðleiks, þar sem hún kynnir merkt tónskáld og flytur verk þess. Kaffiveitingar.