Messa sunnudaginn 28. maí
Messa sunnudaginn kl. 11:00. Barn borið til skírnar og ungmenni fermt. Félagar úr Kór Neskirkju syngja. Stjórnandi og organisti er Steingrímur Þórhallsson. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson. Kaffi á Torginu. Allir velkomnir.
Fermingar 2018
Skráning fermingarbarna fyrir veturinn 2017-18 er hafin. Skránin fer fram rafrænt. Nánari upplýsingar um fermingarfræðsluna ásamt fermingardögum er aðgengileg hér!
Uppstigningardagur
Á uppstigningardag, fimmtudaginn 25. maí, er guðsþjónusta kl. 14:00. Hljómur, kór eldri borgara syngur undir stjórn Hildigunnar Einarsdóttur. Steingrímur Þórhallsson er við hljóðfærið. Ellert B. Schram formaður Félags eldri borgara í Reykjavík flytur hugleiðingu dagsins. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson. Messukaffi.
Vorferð
Krossgötur miðvikudaginn 24. maí. Við höldum í dagsferð suður með sjó þar sem Albert Albertsson og samstarfsfólk hans leiða okkur um Auðlindagarðinn á Suðurnesjum. Sr. Elínborg Gísladóttir býður okkur svo í kaffi og sýnir okkur Grindavíkurkirkju. Lagt verður af stað frá Neskirkju kl. 13.30. Áætluð heimkoma er um kl. 17.30. [...]
Vorhátíð Neskirkju 21. maí
Þann 21. maí verður mikið um dýrðir í Neskirkju því að þá verður vorhátíð. Hún hefst með fjölskylduguðsþjónusta kl. 11 sem Stefanía og Katrín sjá um ásamt sr. Steinunni. Barnakór Neskirkju syngur undir stjórn Jóhönnu Halldórsdóttur og Steingrímur Þórhallsson leikur undir. Að lokinni fjölskylduguðsþjónustu förum við út í garð. Þar verður hoppkastali, [...]
Hjartans þakkir, Droplaug
Á aðalfundi Nessóknar, sunnudaginn 14. maí s.l. urðu þau tímamót að Droplaug Guðnadóttir lét af formennsku í sóknarnefnd og dró sig um leið út úr nefndinni. Droplaug gekk til liðs við okkur fyrir fimmtán árum og er óhætt að segja að á þeim tíma hafi hún verið ómetanleg í störfum [...]
Prestur í Noregi
Krossgötur miðvikudaginn 17. maí kl. 13.30. Sr. Arna Grétarsdóttir, sóknarprestur á Reynivöllum kemur í heimsókn. Á þjóðhátíðardegi Norðmanna, hlýðum við á sr. Örnu lýsa viðburðarríkum störfum sínum meðal Íslendinga í Noregi, þar sem hún þjónaði í rúman áratug. Kaffiveitingar
Messa og sunnudagaskóli 14. maí
Sr. Sigurlín Ívarsdóttir predikar í messunni 14. maí. Hún lærði guðfræði við HÍ og starfaði sem prestur í ensku biskupakirkjunni í nokkur ár. Félagar úr kór Neskirkju syngja í messunni undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir þjónar fyrir altari. Sunnudagaskólinn verður á sínum stað. Eftir sameiginlegt upphaf fer sunnudagaskólinn [...]
Aðalsafnaðarfundur Nessóknar
Aðalfundur Nessóknar verður haldin sunnudaginn 14. maí k. 12.20, að lokinni sunnudagsmessu safnaðarins, í safnaðarheimili kirkjunnar. Venjuleg dagskrá aðalsafnaðarfundar. Sóknarnefnd Neskirkju.
Starf prófasts
Krossgötur miðvikudaginn 10. maí kl. 13.30. Helga Soffía Konráðsdóttir, prófastur Reykjavíkurprófastsdæmis vestra hefur mörgum hnöppum að hneppa í starfi sínu sem prófastur. Embætti þessi eru gróin í kirkjulegri stjórnsýslu en í borgaralegu umhverfi á okkar dögum má ætla að sífellt bætist við ný verkefni sem prófastur þarf að sinna. Kaffiveitingar.