Messa 17. september
Uppskeru og haustgróðamessa kl. 11. Fögnum ávöxtum jarðar í tali og söng. Að messu lokinni er boðið upp á kraftmikla grænmetissúpu úr aldingörðum Steingríms Þórhallssonar organista og vina hans. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson. Félagar úr Kór Neskirkju leiða sönginn. Barnastarfið er á sínum stað undir stjorn Ásu Laufeyjar, [...]
Borgi Ágústsson
Krossgötur þriðjudaginn 12. september kl. 13.00. Bogi Ágústsson, fréttamaður á Ríkisútvarpinu:Heimur á krossgötum, hugleiðingar um alþjóðamálin. Hvað er að frétta úr henni veröld? Hinn kunni fréttaskýrandi viðrar sjónarmið og rýnir í tíðindi líðandi stundar. Kaffiveitingar. Frá kl. 12.oo er boðið upp á súpu og brauð á Torginu gegn vægu verði.
Messa 10. september
Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Söngur, gleð og gaman í sunnudagskólanum. Umsjón Irma, Katrín og Ari. Samfélaga og kaffisopi á Torginu eftir messu.
Hausthátíð sunnudagaskólans
Við fögnum haustinu og upphafi sunnudagaskólans þann 3. september. Sunnudagaskólinn hefst kl. 11 og eftir hann ætlum við að grilla pylsur úti í garði. Sunnudagaskóli verður í umsjón sr. Ásu Laufeyjar Sæmundsdóttur, Katrínar Helgu Ágústsdóttur og Ara Agnarssonar. Það verður söngur og gleði og gamlir kunningjar líta við. Og við [...]
Grillað í garðinum eftir messu á sunnudag
Messa og sunnudagaskóli kl. 11 sunnudaginn 3. september. Allir kirkjugestir hefja samveruna í kirkjunni en sunnudagaskólinn færist svo yfir í safnaðarheimilið. Eftir messu og sunnudagaskóla verður grillað úti í garði. Kór Neskirkju syngur í messunni og leiðir söng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur er sr. Skúli Sigurður Ólafsson. Sunnudagaskóli [...]
Krossgötur hefjast
Krossgötur hefjast þriðjudaginn 5. september kl. 13. Dagskráin er að vanda fjölbreytt og gestalistinn okkar er glæsilegur. Fyrsta fáum við í heimsókn Árelíu Eydísi Guðmundsdóttur. Erindi hennar heitir ,,Sterkari í seinni hálfleik" og fjallar um það hvernig við getum fullnýtt tækifæri okkar á hverju skeiði ævinnar. Boðið er upp á [...]
Messa 27. ágúst
Messa kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftur messu.
Messa sunnudaginn 13. ágúst
Sunnudaginn 13. ágúst verður messa kl. 11 að vanda. Félagar úr kór Neskirkju syngja og leiða söng undir stjórn Steingríms Þórhallsonar organista. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Litir og blöð eru í boði fyrir yngsta fólkið. Kaffihressing og samfélag á kirkjutorgi eftir messu.
Útimessa um verslunarmannahelgi?
Sunnudaginn 7. ágúst kl. 11 verður útimessa og kaffihúsastemning við Neskirkju ef veður leyfir. Félagar úr kór Neskirkju leiða söng. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Kaffi og hressing á kirkjutorgi eftir messu, eða undir messu ef við verðum úti. Litir og blöð fyrir yngsta fólkið.
Sigurbjörn Þorkelsson rithöfundur predikar 30. júlí
Sigurbjörn Þorkelsson rithöfundur predikar við messu kl. 11 sunnudaginn 30. júlí. Sigurbjörn hefur skrifað fjölda bóka og blaðagreina. Síðustu ár hefur hann einnig deilt þeirri reynslu að lifa með krabbameini og hefur hann verið mörgum hvatning og styrkur með skrifum sínum. Sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir þjónar fyrir altari og félagar úr [...]