Uppstigningardagur
Að kvöldi uppstigningardags, fimmtudaginn 30. maí, kl. 20.00 syngur Kór Neskirkju vorsöngva og sálma í kirkjunni. Sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir flytur hugvekju. Boðið verður upp á kaffi og kruðerí á Torginu að samveru lokinni. Hver veit nema að þar verði einnig uppstiginn og uppvaxinn gróður úr aldingarði organistans?
Messa og aðalfundur
Messa kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Kaffisoði og samfélag. Aðalfundur Nessóknar verður haldin í kjölfar messunar. Venjulega aðalfundarstörf!
Vorhátíð
Vorhátíð Neskirkju þann 19. maí kl. 11: Hoppukastalar, grill og gaman. Hin árlega vorhátíð er á sunnudag. Hátíðin hefst með fjölskylduguðsþjónustu kl. 11 þar sem barnakórar Neskirkju syngja. Að henni lokinni verður farið út í garðinn. Þar verða hoppukastalar og andlitsmálning auk þess sem pylsur verða grillaðar ofan í gesti. Allir [...]
Krossgötur 14. maí
Krossgötur þriðjudaginn 14. maí kl. 13.00. Kristján Björnsson, Skálholtsbiskup, kemur í heimsókn og fjallar um verkefni vígslubiskups á nýjum tímum. Miðivikudaginn 28. maí verður síðan farið í vorferð í Skálhlot. Kaffiveitngar og söngur!
Krossgötur 7. maí
Krossgötur þriðjudaginn 7. maí kl. 13.00. Dóra Svavarsdóttir matreiðslumeistari flytur erindi um hægfæði. Kaffiveitingar og söngur!
Messa 5. maí
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju syngja. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Sögu, söngu og gleði í sunnudagskólanum. Umsjón Katrín Helga Ágústsdóttir, Gunnar T. Guðnason og Ari Agnarsson. Samfélaga og kaffisopi á Torginu eftir messu.
Tyrkjaránið á Krossgötum
Á Krossgötum kl 13 þann 30. apríl mun Þorsteinn Helgason fyrrverandi kennari við Háskóla Íslands fjalla um Tyrkjaránið og ýmis minni sem því tengjast. Þorsteinn er sagnfræðingur og doktorsverkefni hans bar yfirskriftina Menning og saga í ljósi Tyrkjaránsins. Hann er flestum fróðari um þennan viðburð í sögu okkar en hefur [...]
Messa 28. apríl
Messa og barnastarf kl. 11. Sameignlegt upphaf. Háskólakórinn syngur undir stjón Gunnsteins Ólafssonar. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Söngur, sögur og gleði í sunnudagaskólanum. Umsjón Katrín H. Ágústsdóttir, Gunnar T. Guðnason og Ari Agnarsson. Samfélaga og kaffisopi á Torginu eftir messu.
Skírdagur, 18. apríl
Messa og máltíð kl. 18.00. Boðið er til máltíðar í kirkjuskipinu þar sem slegið verður upp borði og viðstaddir gæða sér á mat sem þau koma með sem geta og gefa með sér. Brauð og vín er blessað og því deilt út undir borðum. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. [...]
Föstudagurinn langi, 19. apríl,
Helgistund kl. 11.00. Píslarsagan lesin og hugleidd. Ingibjörg Guðjónsdóttir, sópran og Nathalía Druzin Halldórsdóttir syngja kafla úr Stabat Mater eftir Pergolesi. Steingrímur Þórhallsson er við hljóðfærið. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson. Að lokinni helgistund er kaffi á Torginu og Guðmundur Ingólfsson ræðir verk sín sem þar eru á sýningu [...]