Prjónamessa þann 28. júlí
Prjónamessa kl. 11 þann 28. júlí. Messan er hefðbundin en fólki er boðið að koma með handavinnuna og prjóna, hekla eða sauma í messunni. Textar, sálmar og predikun tengjast þemanu og Halldóra Sigríður Steinhólm Bjarnadóttir og Jóhanna Elin Guðmundsdóttir, félagar í prjónahópi Neskirkju aðstoða við messuna. Félagar úr Kór Neskirkju [...]
Messa 21. júlí
Messa kl. 11 sunnudaginn 21. júlí. Viðfangsefni textanna er spurning Jesú: Hvern segið þér mig vera? Árni Þór Þórsson guðfræðinemi predikar og sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir þjónar fyrir altari. Félagar úr kór Neskirkju leiða söng. Allir hjartanlega velkomnir. Blöð og litir í boði fyrir yngstu kynslóðina. Hressing og samfélag á [...]
Messa sunnudaginn 14. júlí
Messa kl. 11 sunnudaginn 14. júní. Félagar úr kór Neskirkju leiða söng við undirleik Steingríms Þórhallsonar organista. Prestur er séra Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Umræðuefni: Að henda steinum í aðra. Fólk á öllum aldri er velkomið. Litir og blöð verða í boði fyrir yngri börnin. Hressing og samfélag að lokinni messu.
Sumarmessa sæl og blíð
Sunnudaginn 7. júlí verður messa kl. 11. Félagar úr kór Neskirkju leiða söng. Sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir predikar og þjónar fyrir altari. Árni Þór Þórsson guðfræðinemi les ritningarlestra og bæn. Barnasvæði með blöðum og litum til staðar fyrir yngri kynslóðina. Í predikun verður fjallað um hve flókið getur verið að [...]
Guðmundur Ingólfsson
Guðmundur Ingólfsson ljósmyndari verður til leiðsagnar og móttöku gesta á Torginu í Neskirkju fimmtudaginn 27. júni frá kl.15-17. Sýningin er ella opin til júlíloka á opnunartíma safnaðarheimilis.
Messa 30. júní
Messa kl. 11.00. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. María Krístín Jónsdóttir situr við hljóðfrærið. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Kaffisopi og samfélaga á Torginu eftir messu.
Messa 16. júní
Messa kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti María Krístín Jónsdóttir. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Messan verður haldin utandyra ef veður leyfir. Kaffi og samfélaga eftir messu.
Ávaxtatré og vorsöngvar
Annar í hvítasunnu kl. 18.00. Neskirkja heldur áfram grænni göngu og á hvítasunnu gróðursetjum við ávaxtatré í garði kirkjunnar. Ásta Camilla Gylfadóttir, landslagsarkitekt, verður á svæðinu og gefur góð ráð á sviði garðyrkju. Kór Neskirkju syngur sumarsöngva og vorsálma undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Glaðlegar veitingar og Steinunnarborð með litum og [...]
Hvítasunna 9. júní
Hátíðarmessa kl. 11.00. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Samfélag og kaffi á Torginu eftir messu.
Messa 2. júní
Messa kl. 11. Félagar úr Söngfélaginu leiða safnaðarsöng. Organisti Bjarni Þór Jónatannsson. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Kaffisopi og samfélag eftir messu.