Helgihald á pálmasunnudag

Messa og barnastarf kl. 11.00 á pálmasunnudag, vígsluafmæli kirkjunnar. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju syngja og leiða safnaðarsöng. Organisti og stjórnandi Steingrímur Þórhallsson. Sr. Steinunn A. Björnsdóttir þjónar fyrir altari en  sr. Skúli S. Ólafsson predikar. Söngur, sögur og gleði í sunnudagaskólanum. Umsjón Kristrún Guðmundsdóttir og Ari Agnarsson. Samfélag og kaffisopi eftir messu á [...]

By |2023-03-29T14:08:21+00:0029. mars 2023 14:08|

Langafasta

Krossgötur þriðjudaginn 28. mars kl. 13.00. Sr Skúli S. Ólafsson fjallar um lönguföstuna. Hverjar eru forsendurnar að baki því að fólk fastaði vikurnar fyrir páska? Hvaða hefðir mótuðust á þeim tíma?

By |2023-03-27T10:58:34+00:0027. mars 2023 10:58|

Syngið Drottni nýjan söng – ný kórverk frumflutt

Kór Neskirkju verður með tónleika þriðjudaginn 28. mars kl. 20.00 í Landakotskirkju. Á tónleikunum verða meðal annars frumflutt þrjú kórverk, Filius es sine fine Dei eftir Báru Grímsdóttur, Ave Maria eftir Gunnar Andreas Kristinsson og Miserere eftir Steingrím Þórhallsson. Ásamt Kór Neskirkju mun Pamela De Sensi spila með á þverflauta. Stjórnandi er auðvita Steingrímur Þórhallsson kórstjórnandi og [...]

By |2023-03-24T09:42:22+00:0024. mars 2023 09:42|

Messa 26. mars

Messa og barnastarf kl. 11.00. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju syngja og leiða safnaðarsöng. Organisti og stjórnandi Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Söngur, sögur og gleði í sunnudagaskólanum. Umsjón Kristrún Guðmundsdóttir og Ari Agnarsson. Samfélag og kaffisopi eftir messu á Torginu.

By |2023-03-24T09:37:11+00:0024. mars 2023 09:37|

Þórarinn Eldjárn

Þórarinn Eldjárn rithöfundur verður gestur á Skammdegisbirtu í Neskirkju sunnudaginn 26. nars nk. Kl 18 – 20. Ragnhildur Þórhallsdóttir og Þorgeir Tryggvason syngja texta eftir Þórarin og Steingrímur Þórhallsson organisti flytur eigin lög fyrir píanó. Skáldið segir frá nýjustu bók sinni Tættir þættir og ef til vill fleiri bókum. Skammdegisbirta er heiti á samverum kirkjunnar [...]

By |2023-03-24T13:39:54+00:0020. mars 2023 11:12|

Trúarleg ljóð

Krossgötur 21. mars kl. 13.00. Guðbjörn Sigurmundsson, kennari og þýðandi ræðir fornan trúarkveðskap, túlkar textana og ræðir samhengi þeirra við þá tíma sem þeir voru ortir. Kaffiveitingar.

By |2023-03-20T09:01:01+00:0020. mars 2023 09:00|

Helgihald 19. mars

Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Sameiginlegt upphaf í kirkjunni. Í messunni syngja félagar úr kór Neskirkju undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Textar dagsins fjalla um manna og möglandi fólk - og hið lifandi brauð. Í sunnudagaskóla leiðir Nanna Birgisdóttir Hafberg leiki, sögur og söng og Ari Agnarsson leikur undir. [...]

By |2023-03-16T08:32:35+00:0016. mars 2023 08:32|

Passíusálmar og barokkskáld

Krossgötur þriðjudaginn 14. mars kl. 13.00. Margrét Eggertsdóttir, 
rannskóknarprófessor á Árnastofnun leiðir okkur inn í föstuna með umfjöllun um evrópsk skáld sem ort hafa út frá píslarsögu Jesú Krist. Í því samhengi er Hallgrímur Pétursson verðugur fulltrúi og er áhugavert að skoða og meta sálma hans út frá hinu evrópska samhengi sem hann var hluti [...]

By |2023-03-13T08:30:23+00:0013. mars 2023 08:30|

Davíð og Golíat

Messa og barnastarf kl. 11. sunnudaginn 12. mars. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Söngur, sögur, leikir og gleði í sunnudagaskólanum. Umsjón Kristrún Guðmundsdóttir og Ari Agnarsson. Samfélag og kaffisopi eftir messu á Torginu.

By |2023-03-09T09:11:40+00:009. mars 2023 09:11|

Píetasamtökinn

Krossgötur þriðjudaginn 6. mars kl. 13.00. Píetasamtökin og vinna með syrgjendum. Bjarni Karlsson, prestur hefur unnið mikið og gott starf með syrgjendum og hefur einkum í störfum sínum byggt upp stuðningshópa meðal karlmanna sem vinna úr áföllum. Bjarni kynnir Píetasamtökinn og segir frá mikilvægu starfi þeirra. Kaffiveitingar.

By |2023-03-06T09:16:28+00:006. mars 2023 09:16|